Umræða: Almennt

Launþegi eða verktaki (hvað viltu?)

Vitna í | Svara
Ágætu FÍT félagar.
- ég vil vekja athygli  á námskeiði Endurmenntunnardeild HÍ um þetta; Viltu vera launþegi eða verktaki ?

Skattalög hafa tekið breytingum í (rauðliða)-ríkistjórn Steingríms og Jóhönnu.
Nú er ekki hagkvæmt að vera með einkahlutafélag. Því þurfa margir að breyta rekstinum í
samvinnufélag eða sameignarfélag til að það svari kostnaði að vera sjálfstætt starfandi hönnuður.

Ég hvet ykkur til að skoða þetta vel.
Það er hægt að vera verktaki á auglýsingastofu. Allir sem eru „freelance" verða að stofna félag utanum sinn
resktur; það gerir það mögulegt að skammta sér laun, taka inn sem kostnað:  tæki,  húsnæði, akstur, símakostnað,
viðhald á tölvum, aðkeypt forrit, aðkeypt viðgerðarþjónusta. Bara allt sem kemur að rekstrinum á einum hönnuði !
Sjálfur leitaði ég til Price Waterhouse Coopers. Bað um viðtal eða ráðgjöf og fékk allt um málið.
Aðstoð þeirra kostar eitthvað smá; ekki mikið sé miðað við ávinninginn !

Með því að breyta rekstrinum í sameingarfélag; stofnkostaður ca. 100 þús.- hef ég sennilega sparað í skattagreiðslum
og fleiru tengdu um 500 til 600 þús. !

Það sem er kannski neitkvætt eða gerir sjálfsábyrgð þína:  þú verður að hafa greiðslur á vsk og innborgun á lífeyrisjóði á hreinu- annast það sjálfur/sjálf,- og vera skuldlaus við skattinn um áramót ! ( ef því sem næst )

Ekki láta þessa vinstristjórn sem hér stjórnar pönnkast á einyrkjum.
- gerið eitthvað í málinu. Ef þú þekkir ekki endurskoðanda eða lögfræðing: finndu þér einn. Gerðu grein fyrir þinni stöðu.
Vertu viss um hvað  það kostar að breyta. Fáðu það skriflegt og samþykkt áður en farið er af stað.

kv bjarni dagur

finndagur@vortex.is

Haukur Már Hauksson - 16. febrúar 2010 kl. 11:34
Vitna í | Svara
Fyrir mína parta þætti mér betra ef þessi vetvangur væri laus við pólitískar pílusendingar.
- en þetta námskeið er örugglega mjög áhugavert.
Gréta V. Guðmundsdóttir - 16. febrúar 2010 kl. 12:00
Vitna í | Svara
algjörlega sammála þér Haukur!
Björn Valdimarsson - 16. febrúar 2010 kl. 12:18
Vitna í | Svara
Hér er eftir því sem ég best veit misskilningur á ferðinni. Það kemur því ekkert við hvort um hlutafélag sé að ræða eða sameignarfélag. Kostnað má að sjáflfsögðu draga frá í rekstri. Breytingin tekur til arðgreiðslna úr félaginu. Áður var hægt að hafa lágt hlutafé og greiða út arð eftir því sem efnahagurinn leyfði og greiða þannig aðeins samtals 23,5% í skatt í stað 36,8% og sleppa þar að auki við launatengd gjöld og mótframlag í lífeyrissjóð. Þetta gagnaðist einkum tannlæknum, lögfræðingum og öðrum sem höfðu mjög miklar tekjur. Ég hef ekki heyrt af því að þetta hafi verið íþyngandi fyrir grafíska hönnuði.

Bestu kveðjur, Björn Valdimarsson

Þórhildur Laufey Sigurðardóttir - 17. febrúar 2010 kl. 11:23
Vitna í | Svara

Mér finnst þessi umræða vera mjög þörf og tek því fagnandi að hönnuðir geti aflað sér upplýsinga í háskólasamfélaginu - ég er einnig sammála að þessa umræðu má algjörlega stunda án þess að vera í pólitísku skítkasti - en það er nú bara svona mín persónulega skoðun.

Ég hef rekið einyrkjafyrirtækið Kúper Blakk ehf. í ákkúrat 3 ár og finnst þetta fyrirkomulag henta mjög vel - ég komst að því eftir að hafa ráðfært mig við endurskoðanda (klukkutíma ráðgjöf kostaði um 15.000.- og síðan er mjög hentugt að vera með svona "hotline" þegar e-ð bjátar á eða skatturinn sendir manni e-ð á "kínversku") að það eru plúsar og mínusar við vsk númer, sf. og ehf. þannig að það er um að gera að fá ráðgjöf hjá  sérfræðingum og finna form sem hentar manni - það getur margborgað sig líkt og Bjarni Dagur bendir á.

Einnig verður sífellt að vega og meta hvort módúlið er að ganga upp - sérstaklega þegar verulega breytingar verða á rekstrarumhverfinu eins og hefur gerst núna. Einu óþægindin sem ég hef haft af því að vera "svona" einyrki , sl. árið, er að þar sem ég er fyrirtækjaeigandi (og hlutafjáreigandi þ.a.l.) þá hef ég þar með skráð mig sjálfkrafa úr allri "aðstoð" s.s. bótum og öðru þar sem hlutafjáreigendur (og einnig þeir sem sitja í stjórn fyrirtækja) eiga ekki rétt á slíkri aðstoð - ég mat það þó að betra væri að þrauka og halda í kennitöluna í stað þess að leggja reksturinn niður ( það finnst mér hafa verið rétt ákvörðun, í dag -- en var erfið þegar verst var = launaleysi í 8 mánuði) Nú veit ég ekki hvernig málin stæðu ef ég væri með vsk. númer, e.t.v. er staðan betri hjá þeim í svona árferði?

En s.s. mín reynsla af ehf. hefur verið góð og ferlið er nokkurn vegin svona með ehf.: 1) finna góðan endurskoðanda 2) leggja til hlutafé (min. 500.000) 3) skila vask og staðgreiðslu (launamiðum) í hverjum mánuði það kemst furðu fljótt í rútínu. 4) gott að hafa aðskylt persónulega kennitölu og kt. fyrirtækis og láta þannig allan rekstur í gegnum fyrirtækið

ég vona að þetta hjálpi e-m sem er að pæla í þessu

góðar stundir
Þórhildur L. Sigurðardóttir

og já p.s. vil minna alla á þann mikilvæga sið að gera verksamninga - ALLTAF! með stór og smá verkefni - er að vinna hér á skrifstofu  Myndstefs og það er ótrúlegt hvað er verið að fara illa með hönnuði, ljósmyndara og listamenn í þessu blessaða þjóðfélagi okkar

Þín tilvitnun: sagði:


Hætta við tilvitnun
SvaraNýr þráður